7.1.2007 | 16:34
Síðasti Séns...
Gott fólk!
Í tilefni þess, að fyrir tveimur dögum fékk ég sendan póst um það að ef ég færi ekki að blogga yrði notendanafn mitt gert upptækt og einhverjum öðrum leyft að nota það, hef ég ákveðið að blogga!
Ég er mikill bloggari, þ.e. þegar ég nenni að blogga, en blogg mín eru aðallega um það sem gerist hjá mér dagsdaglega en stundum bregð ég útaf vananum og hendi inn einstaka sögu sem ég hef skrifað eða mjög innihaldsríkri pælingu!
Þar sem ég er einstakur netfíkill er ávallt gott að eiga heimasíðu undir höndunum. Jafnvel enn betra, heimasíðu undir mínu nafni! Allstaðar annarsstaðar þar sem hægt er að fá ókeypis bloggsíðuaðgang er notendanafnið Marta löngu farið. Meira að segja veffangið www.marta.com hefur verið tekið svo að þetta er líklega mitt eina tækifæri, minn síðasti séns á að eignast heimasíðu á eigin nafni!
Þess vegna hef ég mikið velt því fyrir mér hvort ég eigi að hefja blogg hér á þessu mikla bloggsvæði Morgunblaðsins en ég hef ekki enn komist að niðurstöðu. Með þessu bloggi hef ég því tekið ákveðið skref í átt að niðurstöðu í því máli. Kannski ég ætti að henda mér útí hinn myrka heim hinna svokölluðu 'alvöru' bloggara? Eða ætti ég bara að halda mig við blog.central.is þar sem ég get bullað að vild án nokkurra afskipta? Þetta eru verðugar pælingar! AHamm!
Nú bíður mín erfið ákvörðun og tíminn einn getur leitt í ljós hver niðurstaða hennar verður!
Þangað til næst...
Marta
Ps. Ástæða þessa bloggs er náttúrulega ekki einungis sú að ég þurfi að koma togstreitunni frá mér, nei, eins og þið sjáið þá eru þessir fallegu tómatar efst á síðunni önnur ástæða! Tómatar í rökkri! Stórkostlegt! Njótið!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.4.2006 | 17:40
Prufu færsla
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
